Fyrirtækið

Um okkur

Hjá Tegra leggjum við áherslu á að hjálpa samstarfsaðilum okkar við að halda sig á sígrænu brautinni þegar kemur að upplýsingatækni. Reglulegar uppfærslur eru ekki einungis mikilvægar í tengslum við öruggismál því þegar allt kemur til alls þá vill enginn sitja eftir fastur í úreltu umhverfi.

Þess vegna leitumst við stöðugt við að bæta við okkur þekkingu ásamt því að aðlagast nýrri tækni um leið og hún kemur á markað, ef ekki fyrr. Við teljum að samstarfsaðilar okkar ættu að geta litið á ERP-kerfið sitt sem eitthvað sem skilar þeim verðmætum í stað þess að vera einungis kostnaður.


Hvað getum við gert fyrir ykkur?



Við vinnum með fólki sem vill auka arðsemi og samlegð fyrirtækisins síns með nýsköpun og stöðugri þróun. Þau sem vinna með okkur hafa aðgang að framúrskarandi ráðgjöfum sem ekki einungis greina og leysa vandamál, heldur koma gjarnan auga á metnaðarfull tækifæri sem geta gert fyrirtækjum kleift að sjálfvirknivæða og hagræða ferlum.

Við erum stolt af því að vera fjölbreyttur vinnustaður með starfsfólki frá löndum víða um Evrópu. Við leggjum áherslu á beina og opna menningu innan fyrirtækisins og því metum við innlegg og frumkvæði allra.

Share by: